Verðlaunaafhending FÍT 2010 / Grafísk hönnun fer fram í IÐU, Lækjargötu 2a, miðvikudaginn 17. mars kl. 18.00. Við sama tækifæri verður opnuð sýning fyrir fagfólk og almenning á viðurkenndum og verðlaunuðum verkum keppninnar.

DJ AnDre mun sjá gestum fyrir seiðandi tónlist.

Hönnunarbolakeppni FÍT, Félags íslenskra teiknara og Nakta Apans sem haldin var í febrúar 2010. Félagsmenn FÍT kepptu um bestu útfærslu grafíkmyndar á bol en þema keppninnar var hönnun með letur. Nakti Apinn, sem þekktur er fyrir metnaðarfullar og skapandi fatalínur, aukahluti og aðrar vörur sá um framleiðslu bolanna.

Á sýningunni má sjá verðlaunaða boli og festa kaup á sigurtillögunni en hún mun aðeins vera seld í 15 tölusettum eintökum.

Sýningin verður opin 18. – 21. mars frá kl. 09.00 – 22.00.

Sýningin FÍT2010/Grafísk hönnun er haldin í tengslum við HönnunarMars, sem Hönnunarmiðstöð Íslands stendur fyrir. Sýningin verður opnuð við hátíðlega athöfn í Iðukjallara við Lækjargötu 17. mars n.k. kl. 18:00 og verða þá úrslit kynnt og verðlaun afhent. Sýningin verður síðan opin almenningi 18. – 21. mars frá kl. 09.00 – 22.00.

Á sýningunni gefst gestum kostur á að kynna sér brot af því besta sem er að gerast í grafískri hönnun í dag en þar getur á að líta veggspjöld, bækur, geisladiska, firmamerki, letur, myndskreytingar, vefsíður, auglýsingar, umbúðir og ýmiskonar kynningarefni.

Hægt er að skrá sig á viðburðina og fá frekar upplýsingar á Facebook síðu FÍT.