Sérstakt eyðublað skal fylgja hverri innsendingu. Það skal útfyllt á íslensku og ensku. Athugið að mismunandi eyðublað er fyrir hvern flokk eins og fram kemur á innsendingarblöðum.
Einnig þarf að greiða þátttökugjald fyrir hverja innsendingu áður en henni er skilað inn. Aðeins er tekið við greiðslum í gegnum heimabanka og skal útprentuð kvittun skal fylgja umsókn.
Það er algjörlega á ábyrgð innsendanda að hér sé rétt að farið.
Reikningsupplýsingar eru að finna á umsóknareyðublöðum.
Innsendingakostnaður er 3500 kr. á hverja innsendingu. Keppnin er eins og fyrr aðeins opin fullgildum félögum í FÍT, en fullgildur meðlimur í FÍT er skráður og skuldlaus einstaklingur.
