Aðalviðburður ársins hjá FÍT Félagi íslenskra teiknara, FÍT / 2010, Grafísk hönnun á Íslandi er framundan.

Keppnin hefur með árunum unnið sér viðurkenningu og fastan sess og telst nú til helstu hönnunarviðburða ársins hverju sinni. Keppnin FÍT / 2010, Grafísk hönnun á Íslandi er með svipuðu sniði og fyrri keppnir.

Nokkrar breytingar hafa þó verið gerðar á flokkum í því skyni að dekka betur hið grafíska hönnunarumhverfi. Þannig eru nú teknir inn fleiri flokkar, án þess að auka um of umfang keppninnar.

Athugasemdir og spurningar eru vel þegnar á netfangið fit@teiknarar.is