Keppnin FÍT / 2010, Grafísk hönnun á Íslandi skiptist í 4 yfirflokka. Þessir yfirflokkar eru: Útgáfa, Mörkun og teikning, Skjámiðlar, Auglýsingar og kynningarefni.
Hver þessara yfirflokka greinist síðan eftir eðli viðfangsefnisins í 18 undirflokka.
Þátttakandi velur sér flokk eftir eðli efnis og ber sjálfur fulla ábyrgð á því vali.
Viðurkenning er veitt fyrir besta efni í hverjum undirflokki, að mati dómnefndar. Hið viðurkennda efni undirflokkanna keppir síðan um verðlaun í hverjum aðalflokki.
Sigurvegarar í hverjum aðalflokki keppa síðan um heiðursverðlaun keppninar, aðalverðlaun FÍT / 2010, Grafískrar hönnunar á Íslandi.
Nemendaverðlaun FÍT.
Auk þessara flokka verður flokkurinn Nemendaverðlaun FÍT með sama sniði og áður.
Smelltu á flokkana hér til hliðar til að fá meiri upplýsingar.
Útgáfa
Mörkun og teikning
Skjámiðlar
Auglýsingar og kynningarefni