Samkeppnir
Á hverju ári stendur FÍT fyrir hönnunarsamkeppni þar sem veitt eru verðlaun í ýmsum flokkum. Ýmsar aðrar samkeppnir eru í gangi hverju sinni og er það vel. FÍT hefur hins vegar, sem fagfélag grafískra hönnuða, sett ákveðin skilyrði fyrir framkvæmd samkeppna sem óskar þátttöku félaga sinna og hvetur samkeppnishaldara og félagsmenn sína til að vera vakandi fyrir þeim skilyrðum. Ástæðan er fyrst og fremst að standa vörð um fagið, að ekki sé grafið undan starfsgrundvelli hönnuða og að virðingu sé haldið fyrir verkum sem grafískir hönnuðir vinna.

Einnig er töluvert af samkeppnum sem FÍT stendur óbeint eða alls ekki að, sem við munum einnig segja frá hér.

Sendu upplýsingar um þær samkeppnir sem eru í gangi á fit@teiknarar.is.
  • 14. mars 2010
    Íslandspóstur og FÍT bjóða til samkeppni um hönnun á frímerki í tilefni 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar.
    Meira
  • 14. mars 2010
    Hinn 17. júní 2011 verða liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Beiðni kom frá afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar, sem starfar á vegum forsætisráðuneytisns, að haldin yrði samkeppni um afmælismerki og var því leitað til FÍT með samstarf í huga. Nú hefur form keppninnar verið ákveðið og er um lokaða samkeppni að ræða, sem aðeins er opin félögum FÍT. Meira
  • 10. apríl 2009
    Skilafrestur er nú rúnninn út. Takk fyrir þátttökuna.
    Athugið framlengdan skilafrest: Þriðjudagur 19. maí kl. 17.00 að íslenskum tíma.

    Félagið Ísland-Palestína auglýsir samkeppni um plötuumslag safnplötunnar Inshallah. Samkeppnin er haldin í samstarfi við FÍT, Félag íslenskra teiknara.
    Meira
  • Reykjavíkurborg
    23. ágúst 2008
    Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkur­borgar boðar til opinnar samkeppni um samræmt útlit menningarmerkinga í Reykjavíkurborg. Markmið með slíkum merkingum er að kveikja áhuga fólks og efla fræðslu um menningu, sögu og náttúru borgarinnar. Meira
  • FÍT
    18. júlí 2008
    Hönnunarmiðstöð Íslands, regnhlífasamtök hönnunarfélaga á Íslandi, leitar af nýju merki.
    Samkeppnin er haldin í samvinnu við FÍT.

    Nánar má lesa um samkeppnina á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar:
    Merkjasamkeppni fyrir Hönnunarmiðstöð Íslands