FÍT verðlaunin
gripir_crop.jpg
Kepninni um hönnunarverðlaun FÍT var hleypt af stokkunum í ársbyrjun 2001 og voru þau í fyrsta sinn afhent í Ásmundarsafni við Sigtún, föstudaginn 9. mars. Þá bárust yfir 100 innsendingar sem má teljast gott fyrir fyrsta skiptið.

Markmið keppninnar er að vekja athygli á því sem félagsmenn FÍT telja vera bestu grafísku hönnunarverk ársins og einstaklingunum sem koma að hönnun þeirra. Með keppninni er ætlunin að auka vitund fagsins fyrir því sem vel er gert og auka hróður þess sem frumlegt er og hugvitsamlega útfært í grafískri hönnun á hverjum tíma auk þess að vekja athygli á höfundum verkanna.

Hönnunarverðlaun FÍT eru bundin við félagsmenn FÍT og dómnefndin er eingöngu skipuð fagfólki og félögum FÍT sem starfa við grafíska hönnun. Eingöngu er dæmt í flokkum sem byggja á grafískri hönnun. Innsendu verkin koma ýmist frá FÍT félögum sem starfa sjálfstætt eða á stofum.En þar sem stærstur hluti félaga í FÍT vinnur á alhliða auglýsingastofum fremur en hreinum grafískum hönnunarstofum liggur það í hlutarins eðli að stór hluti hönnunarverkanna er unnin í tengslum við þær, af hönnuðum sem þar starfa.

Grafísk hönnun byggir á innsæi og sköpunargáfu einstaklinga líkt og önnur hugverk. Hún er mismunandi sýnileg eftir því hvar notkun hennar fer fram. Stór hluti grafískrar hönnunar kemur fyrir augu almennings á hverjum degi. Jafnframt eru verk hönnuð fyrir sérstakari tilgang ogtakmarkaðri dreifingu og koma þau þar af leiðandi síður fyrir augu hönnuða og hins almenna borgara nema þeir tengist á einhvern hátt hönnuði verksins. Auglýsingahluti fagsins er oftast nær tengdari inn í fleiri og flóknari vinnuhópa sem leggja mismunandi þekkingu til verksins. Þar koma sama ólíkir hæfileikar sem vinna að lausn verksins hverju sinni. Auglýsingahluti grafískrar hönnunar er fyrirferðamestur hér í okkar smáa starfssumhverfi og því beinist meiri athygli að honum.Hönnunarþátturinn verður sífell mikilvægari í aukinni samkeppni, en hann hefur hins vegar verið minna áberandi í umræðunni. Það er von félagsmanna að keppnin gefi tilefni til skoðanaskipta og umræðna, myndi vekja athygli á því sem hér er að gerast og kveikja frekari áhuga á vandaðri grafískri hönnun innan atvinnulífsins, meðal almennings og síðast en ekki síst þeim sem starfa við fagið sjálft.
  • 18. mars 2010
    FÍT verðlaunin voru haldin hátíðleg í áttunda sinn miðvikudaginn 17. mars í IÐU.

    Stjórn FÍT þakkar öllum sem hafa aðstoðað við dóma og framkvæmd sýningar og keppni FÍT 2010 / Grafísk hönnun á Íslandi.



    Aðalverðlaun FÍT 2010


    Meira
  • 23. febrúar 2009
    FÍT verðlaunin voru haldin hátíðleg í sjöunda sinn föstudaginn 20. febrúar í Norræna húsinu.
    Meira