Um FÍT
Félag íslenskra teiknara, FÍT, er félagsskapur grafískra hönnuða og myndskreyta á Íslandi. FÍT var stofnað 23. nóvember 1953 að Túngötu 38 í Reykjavík af 7 einsaklingum en samstarf hafði verið meðal þessa fólks frá 1946. Fyrsti formaður var Ásgeir Júlíusson. Félagar eru nú rúmlega 300. Tæpur helmingur þeirra er starfsfólk á auglýsingastofum en meirihlutinn starfar sjálfstætt. Síðastliðin ár hefur þeim er starfa sjálfstætt farið ört fjölgandi.

FÍT er félag þess fólks sem lokið hefur viðurkenndu námi í grafískri hönnun eða öðlast starfsréttindi á annan hátt.

Aðalmarkmið FÍT er að efla starfsstéttina, kynna hana út á við og auka samstöðu félagsmanna. Hvers kyns fræðsla og samvinna er á stefnuskrá FÍT. Félagið skipuleggur námskeið og sýningarhald, fræðslufundi og fyrirlestra, sér um að samkeppnisreglur séu virtar og er í samstarfi við sambærileg félög erlendis. Félagið beitir sér fyrir því að styrkja vinnuumhverfi teiknara og efla meðvitund félagsmanna um eigin rétt, m.a. með útgáfu á fréttabréfi fjórum sinnum á ári.

FÍT er eingöngu rekið fyrir félagsgjöld og hefur ekki eigin aðstöðu. Unnið er að því að efla fjárhaginn með fastri innkomu annarri en félagsfjöldum. Starfsemin hefur verið mismikil gegnum árin og ráðist að nokkru leiti af áhuga stjórnarmanna hverju sinni. Þó er óhætt að segja að starfsemin hafi eflst og fengið á sig fastara form síðastliðin ár.

FÍT er fagfélag en ekki stéttarfélag, þannig að félagið berst ekki í hagsmunamálum einstakra félaga eða leggur línur um verð eða verðskrár. Það er frekar að félagið beiti sér á þann hátt að afla félagsmönnum sem mestra upplýsinga um mál sem þá varða og reyna að styðja við bakið á þeim eftir fremsta megni og eins og t.d. hvað varðar höfundarréttarmál.

Félag grafískra teiknara, FGT, er stéttarfélag þeirra teiknara er vinna hjá auglýsingastofum, í prentiðnaði eða öðrum fyrirtækjum og fer með samningsrétt þeirra. Félagar þar eru nú um 50, flestir þeirra eru félagar FÍT. Félagið var stofnað 1976 og var fyrsti formaður þess Hjálmtýr Heiðdal.

Í stjórn FÍT sitja nú 5 einstaklingar, formaður, gjaldkeri, ritari og 1 meðstjórnandi ásamt einum fulltrúa nemenda í faginu. Formaður FÍT er Hörður Lárusson. Mikið er lagt upp úr því að stjórnarmenn séu virkir og einnig að virkja félagsmenn í ýmiss verkefni. Stofnaðir eru vinnuhópar í kring um ákveðin verkefni og hefur það fyrirkomulag gefist vel.

Til að gerast félagi í FÍT verða menn að hafa lokið þriggja ára námi í grafískri hönnun við Listaháskóla íslands (áður MHÍ), Myndlistaskóla Akureyrar eða í sambærilegum skóla erlendis. Að öðrum kosti verða þeir sem hafa öðlast starfsreynslu að senda inn verk, sem stjórnin metur og mælir með eða á móti.