Merki FÍT er hannað af Atla Hilmarssyni, sem sigraði í samkeppni semvar haldin meðal félagsmanna árið 1993. Merkið er byggt á letrinuAkzidenz Grotesk og er ávalt notað annaðhvort svart eða hvítt.
Ásamt merkinu skilaði Atli einnig inn útliti fyrir helsta kynningarefnifélagsins, svo sem nafnspjöld, bréfsefni, umslög, fréttabréf og fleira.Þetta útlit var ekki notað lengi framan af, en næstum því 15 árum eftirað útlitið var hannað var ákveðið að draga það upp úr skúffunni og varþað meðal annars notað sem grunnur að útliti á þessar vefsíðu félagsins.
Árið 2003 varð FÍT 50 ára og í tilefni þess var Atli Hilmarsson beðinn að útbúa 50 ára afmælismerki FÍT.