Nám í grafískri hönnun
Til að verða grafískur hönnuður sækir þú nám í grafískri hönnun sem fer fram í Listaháskóla Íslands, Myndlistaskólanum á Akureyri eða sambærilegum skólum erlendis. Nám í grafískri hönnun í Listaháskólanum er þriggja ára, 90 eininga grunnnám til B.A. gráðu. Grafísk hönnun skiptist í prent- og margmiðlun. Nám í grafískri hönnun er nám í framsetningu á upplýsingum á myndrænan hátt fyrir fjölmiðlagreinar. Hægt er að leggja áherslu á prent- eða skjámiðla.

Námið skiftist í verklega þætti í vinnustofu 54 einingar, tækni og aðferðir 9 einingar og fræðilegar greinar 27 einingar. Á fyrsta ári er námið almennt, farið er yfir hönnunarferilinn og kennd hugmyndavinna, upplýsingatækni, skissugerð, tölvuvinna og ljósmyndun. Eftir því sem á námið líður beinist þekkingarleit nemandans frá því almenna til hins sérhæfða og aðgreiningin í námsbrautir verður skýrari. Nemendur skila tvíþættu B.A. verkefni, skrifa lokaritgerð og vinna útskriftarverk sem þeir sýna á lokasýningu.

Listaháskóli Íslands sækist eftir hæfileikamiklum og hugmyndaríkum einstaklingum með góða almenna undirstöðumenntun og grunnþekkingu á viðkomandi sviði. Rétt til að sækja um nám hafa þeir sem lokið hafa stúdentsprófi, sambærilegu námi eða námi af listnámsbrautum framhaldsskólanna. Þeir sem sækja um eftir að hafa lokið námi af listnámsbrautum verða að auki að hafa lokið 6 einingum í íslensku og 12 einingum í erlendum tungumálum eða samtals 123 einingum.

Þeir sem ekki uppfylla þessar kröfur koma þá aðeins til greina, að þeir geti sýnt fram á einstaka, óvenjulega hæfileika á því sviði sem þeir sækja um og hafa að baki annað nám eða störf sem að mati viðkomandi deildar getur talist jafngildi þess náms sem á vantar. Deildarforseti skal að fengnu mati inntökunefndar leggja fram tillögu til rektors um hvaða einstaklingum eigi að veita tækifæri til þess að sækja um inngöngu á þessum forsendum. Veitt undanþága gildir einungis um það nám sem sótt er um.