Flokkur: Fréttir

Mæna - Tímarit um grafíska hönnun
13. mars 2010
13. mars 2010
Góðan dag.

Mæna, tímarit um grafíska hönnun kemur út laugardaginn 20. mars, kl. 13-13:20 í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.

Tímaritið er hannað, skrifað að hluta, og framleitt af útskriftarnemum 2010 í grafískri hönnun við LHÍ.
Útskriftarnemarnir kynna útgáfuna. Þau hönnuðu blaðið og unnu mikið af efninu í það, sem og að hanna vefinn. Svo gengur það verkefni koll af kolli -- 2. árs nemendur núna, hanna blaðið og vefinn næsta haust. Blaðið verður í þýðingu sinni (íslenska á ensku og öfugt), þann sama dag, http://www.maena.is/articles/magazine-articles/

Skýringar á tilgangi útgáfunnar eru hér:
http://www.maena.is/about/

Vefur Mænu http://www.maena.is/ bíður eftir að grafískir hönnuðir, teiknarar og auglýsingafólk (og auglýsingastofur / hönnunarstofur) láti ljós sitt skína undir liðnum "Other works". (Ef ykkur vantar aðstoð eða upplýsingar við að setja inn get ég hjálpað en líka forritunarmeistari mænu.is Bjarni Þórisson, bjarnit@lhi.is). Svo er info@maena.is

Til að skrá sig sem notanda er farið þið hér inn:
http://www.maena.is/registration/login/
(Hægt að fara inn á LHÍ notendanafni og lykilorði ef það er til -- en líka Open ID / Facebook account ofl.)

Mæna er á FACEBOOK -- mikið væri fallegt af þér að bjóða vinum þínum á útgáfuviðburðinn (sjá bæði á vegg og neðst í vinstra horni) og ekki síður að hjálpa til við að kynna möguleika vefsins fyrir bransanum, fræðingum og áhugafólki um hönnun:
http://www.facebook.com/pages/maenais-maenais/303895556845

Bestu kveðjur,
Dóra Ísleifsdóttir,
fagstjóri í grafískri hönnun við LHÍ.