FÍT byrjar HönnunarMarsinn snemma!
Verðlaunaafhending FÍT 2010 / Grafísk hönnun fer fram í IÐU, Lækjargötu 2a, miðvikudaginn 17. mars kl. 18.00. Við sama tækifæri verður opnuð sýning fyrir fagfólk og almenning á viðurkenndum og verðlaunuðum verkum keppninnar.
DJ AnDre mun sjá gestum fyrir seiðandi tónlist.
----------
Sýning
Sýningin FÍT2010/Grafísk hönnun er haldin í tengslum við HönnunarMars, sem Hönnunarmiðstöð Íslands stendur fyrir. Sýningin verður opnuð við hátíðlega athöfn í Iðukjallara við Lækjargötu 17. mars n.k. kl. 18:00 og verða þá úrslit kynnt og verðlaun afhent. Sýningin verður síðan opin almenningi 18. ? 21. mars frá kl. 09.00 ? 22.00.
Á sýningunni gefst gestum kostur á að kynna sér brot af því besta sem er að gerast í grafískri hönnun í dag en þar getur á að líta veggspjöld, bækur, geisladiska, firmamerki, letur, myndskreytingar, vefsíður, auglýsingar, umbúðir og ýmiskonar kynningarefni.
----------
Bolakeppni FÍT og Nakta Apans
Hönnunarbolakeppni FÍT, Félags íslenskra teiknara og Nakta Apans sem haldin var í febrúar 2010. Félagsmenn FÍT kepptu um bestu útfærslu grafíkmyndar á bol en þema keppninnar var hönnun með letur. Nakti Apinn, sem þekktur er fyrir metnaðarfullar og skapandi fatalínur, aukahluti og aðrar vörur sá um framleiðslu bolanna.
Á sýningunni má sjá verðlaunaða boli og festa kaup á sigurtillögunni en hún mun aðeins vera seld í 15 tölusettum eintökum.
Sýningin verður opin 18. ? 21. mars frá kl. 09.00 ? 22.00.
----------
Um FÍT 2010 / Grafísk hönnun á Íslandi
Hönnunarkeppnin FÍT 2010 / Grafísk hönnun á Íslandi er árleg keppni FÍT, Félags íslenskra teiknara þar sem félagsmenn eru verðlaunaðir fyrir framúrskarandi verk í grafískri hönnun. Keppnin er haldin meðal félaga í FÍT en þeir senda sjálfir inn verk sín í keppnina.
Markmið keppninnar er að vekja athygli á því besta í grafískri hönnun á árinu og þeim einstaklingum sem koma að hönnun verkanna. Með keppninni er ætlunin að auka vitund fyrir því sem vel er gert og auka hróður þess sem er frumlegt og hugvitsamlega útfært í grafískri hönnun á hverjum tíma.
Keppnin gefur tilefni til skoðanaskipta og umræðna, vekur athygli á sköpun, straumum og stefnum og kveikir frekari áhuga á vandaðri grafískri hönnun innan atvinnulífsins, meðal almennings og síðast en ekki síst þeirra sem starfa við fagið sjálft.
Frekari upplýsingar á:
www.honnunarmidstod.is
www.facebook.com/fit