Ţann 6. júní síđastliđinn var dćmt í 2008 ADC*E Awards keppninni í Barcelona og í fyrsta sinn, síđan Ísland byrjađi ađ taka ţátt, kemur Ísland heim međ Gull.
Keppnin er haldin árlega og ţar kemur saman allt ţađ besta úr grafískri hönnun og auglýsingagerđ, alls stađar ađ úr Evrópu. Síđastliđin ár hefur dómgćslan fariđ fram í höfuđstöđvum ADC*E í Barcelona og eins og venja er sendi FÍT út fjóra fulltrúa til ađ dćma. Í ár fóru út Hörđur Lárusson (formađur), Birna Geirfinnsdóttir, Haukur Már Hauksson og Krisjtana Sigurđardóttir og dćmdu í rúmlega 950 innsendingum.
Í ár voru veitt 30 gull (fyrstu verđlaun í sínum flokki) og ein Grand Prix verđlaun en merkilegustu verđlaunin í ár eru án efa í flokki nemenda, ţví ţađ var ţar sem Ísland vann fyrsta gulliđ sitt í ADC*E Awards.
Margrét Ingibjörn Lninquist, sem útskrifađist núna í vor frá Myndlistaskólanum á Akureyri, sigrađi ţann flokk međ töluverđum yfirburđum. Hún lagđi fram verkefniđ how2own, sem er hönnun á vatnsflöskum.
Hugmynd Margrétar, sem féll svo vel í dómnefndina, var ađ hanna útlit á flösku sem hefur fallegt og áberandi útlit, en á sama tíma flösku sem tekur ekki athyglina frá uppstillingum á veitingastöđum og öđrum borđum.
Hún segir ađ hugmyndin hafi vaknađ ţegar hún vann á veitingastađ og fannst vanta vatnsflösku, sem vćri hćgt ađ bera á borđ, sem vćri ekki ţakin litum, merkjum og auglýsingum framleiđandans, heldur vćri fáguđ og myndi passa vel inn.
Auk ţess ađ vinna sér inn ţann heiđur ađ vera valinn nemandi ársins í Evrópu, ađ mati ADC*E, fćr Margrét líka frí skólagjöld í eitt ár í Miami Ad School í Hamborg ađ verđmćti rúmlega 10.000 evra.
FÍT óskar Margréti ađ sjálfsögđu til hamingju međ ţennan frábćra árangur og međan viđ vonum ađ ţetta verđi henni góđ lyftistöng inn í bransann, ţá vonum viđ líka ađ ţetta verđi hvatning fyrir ađra félagsmenn ađ stefna á gull á nćsta ári.
Einnig voru valin Grand Prix verđlaun ADC*E, en í ár féllu ţau í hendur verksins Power of Wind, sjónvarpsauglýsing framleidd af Nordpol+ í Hamborg.
Hér má sjá auglýsinguna á YouTube.
Nánar um verđlaunin og sigurvegarana í hinum flokkunum má lesa á síđu
ADC*E.