Flokkur: Fréttir

Hönnunarbolakeppni FÍT & Nakta apans
5. febrúar 2010
5. febrúar 2010
2649751788_73412888f9.jpg
Fítarar eru hvattir til að taka þátt í skemmtilegri keppni um athyglisverðustu útfærslu grafíkmyndar á boli. Keppnin er haldin í samstarfi við Nakta apann sem er þekktur fyrir metnaðarfulla og skapandi fatalínu.
Bolirnir sem sigra verða sýndir á Hönnunarmars 2010 og verðlaunatillagan seld í 15 tölusettum eintökum.

Upplýsingar um keppni:


Þema grafíkmyndar:
Týpógrafía
Stærð myndar: 590x400 mm (háformat)
Litir: 1-2
Format: PDF (vectorar, allar myndir rastaðar)
Þekjun litar: ef það er rasti í einhverju má hann ekki ver minni en 1,5 pkt á millimetri)
Grunnlitur á bol: Hvítur

Frestur til að skila tillögum: Föstudaginn 19. febrúar.
Tillögur skulu sendar á: fit@teiknarar.is
Merkt: Hönnunarbolakeppni FÍT & Nakta apans. Meðfylgjandi nafn og símanúmer.
Trúnaðarmaður keppninnar: Hörður Lárusson (hordur@atli.de). Hörður mun halda utan um innsendingar og þær verða dæmdar án höfundarnafns.

Dómnefnd skipa Gréta V. Guðmundsdóttir og Bjarni Helgason frá FÍT og Bergur Finnbogason Nakta apanum.

3 tillögur verða valdar.
Númer 2-3 fá einn bol framleiddan fyrir sig
Verðlaunahafinn fær 5 boli framleidda fyrir sig og um 20% hlutdeild í hagnaði af sölu 15 tölusettra eintaka af vinningsbolnum sem verður seldur á Hönnunarmars.