Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar hefur ákveðið að fresta skilum í merkjakeppnina, til að minnka líkur á ruglingi við frímerkjakeppnina. Eða eins og segir í tilkkynningu frá nefndinni:
Að ráði hefur orðið í samráði við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar að framlengja skilafrest í samkeppni um afmælismerki Jóns Sigurðssonar. Þetta er gert í samræmingarskyni og til að fyrirbyggja misskilning í tengslum við skil. Þannig er skilafrestur í báðum keppnum til 30. apríl n.k., þ.e samkeppni um afmælismerki Jóns Sigurðssonar og samkeppni um hönnun á frímerki í tilefni 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar.
Því er skilafrestur nú 30. apríl í báðum keppnum.
Við minnum á reglur um skil í keppnirnar, sjá hlekki hér að neðan.
Frímerkjakeppni:
http://teiknarar.is/extensions/drupal/undirsidur/17/frimerkjakeppni-jons-sigurdssonar
Merkjakeppni:
http://teiknarar.is/extensions/drupal/undirsidur/17/afmaelismerki-jons-sigurdssonar