Íslandspóstur og FÍT hafa sett af stað lokaða samkeppni meðal félagsmanna FÍT um hönnun á afmælis-frímerki fyrir Jón Sigurðsson, sem verður gefið út á 200 ára afmæli hans, 17. júní 2011.
Innsendar tillögur verða einnig sýndar á sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur, næstkomandi 17. júní, sléttu ári áður en frímerkið er gefið út.
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin, samtals 1.000.000 krónur.
Skilafrestur er 30. apríl 2010.
Greinargóða keppnislýsingu er að finna á síðunni okkar:
Frímerkjakeppni Jóns Sigurðssonar
Einnig er hægt að sækja keppnislýsinguna ásamt auka gögnum um Jón Sigurðsson á þessari slóð:
www.teiknarar.is/jonsigurdsson.zip
Með von að sem flestir taki þátt og hafi gaman af,
Stjórn FÍT.