Flokkur: Fréttir

  • warning: realpath() [function.realpath]: open_basedir restriction in effect. File(/tmp) is not within the allowed path(s): (/var/www/virtual/teiknarar.is/:/usr/share/php/:/usr/local/bin/convert) in /var/www/virtual/teiknarar.is/htdocs/drupal/includes/file.inc on line 288.
  • warning: realpath() [function.realpath]: open_basedir restriction in effect. File(/tmp) is not within the allowed path(s): (/var/www/virtual/teiknarar.is/:/usr/share/php/:/usr/local/bin/convert) in /var/www/virtual/teiknarar.is/htdocs/drupal/includes/file.inc on line 528.
  • warning: tempnam() [function.tempnam]: open_basedir restriction in effect. File() is not within the allowed path(s): (/var/www/virtual/teiknarar.is/:/usr/share/php/:/usr/local/bin/convert) in /var/www/virtual/teiknarar.is/htdocs/drupal/includes/file.inc on line 528.
  • warning: fopen() [function.fopen]: Filename cannot be empty in /var/www/virtual/teiknarar.is/htdocs/drupal/includes/file.inc on line 529.
  • The file could not be created.
  • warning: Parameter 1 to theme_field() expected to be a reference, value given in /var/www/virtual/teiknarar.is/htdocs/drupal/includes/theme.inc on line 170.
  • warning: Parameter 1 to theme_field() expected to be a reference, value given in /var/www/virtual/teiknarar.is/htdocs/drupal/includes/theme.inc on line 170.
  • : Function ereg() is deprecated in /var/www/virtual/teiknarar.is/htdocs/drupal/includes/file.inc on line 649.

Forsíðusamkeppni Símaskrárinnar 2010
10. mars 2010
Sú ótrúlega staða kom upp þegar þrjár efstu tillögurnar í forsíðusamkeppni Símaskrárinnar 2010 voru valdar að þær reyndust allar vera eftir sömu höfundana, þær Elísabetu Brynhildardóttur og Önnu Ingólfsdóttur.

Alls bárust um 1.530 tillögur í samkeppnina en skilafrestur rann út 1. desember sl. Fimm manna dómnefnd valdi þær þrjár tillögur sem henni þóttu bestar og síðustu tvær vikur hefur almenningi gefist kostur á að veita álit sitt á tillögunum þremur í netkosningu á vef Já. Tekið skal fram að tillögurnar voru ekki merktar með nafni og því hafði dómnefnd enga vitneskju um nöfn höfunda fyrr en að vali loknu.
„Úr miklum fjölda innsendra tillagna báru nokkrar af. Leyfilegt var fyrir hvern og einn að senda inn fleira en eina tillögu. Tillögur voru merktar dulnefni. Þegar verulega góðar tillögur birtast er ekki um þær deilt – það verða allir sammála, því þær tala til hjartans. Símaskráin er ekki bara nytsamleg – hún er hjartans mál. Dómnefndinni til mikillar furðu áttu sömu aðilar allar bestu tillögurnar. Það var huglægt mat – en álitið var samdóma,“ segir Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor við Listaháskóla Íslands og formaður dómnefndar.

Vegleg verðlaun voru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin; 700.000 kr. fyrir 1. sæti; 200.000 fyrir 2. og 100.000 fyrir 3. sæti, auk heiðursins sem í því felst að vinningshafar fá listaverkið sitt framan á um 150.000 bækur sem berast inn á meirihluta heimila landsins og eru geymdar á vísum stað í heilt ár. Elísabet og Anna hljóta því samtals eina milljón króna í sinn hlut.

Elísabet er myndskreytir að mennt og Anna rithöfundur og eru þær að vinna að barnabók saman. „Þátttaka okkar Önnu í keppninni var einskonar tilraunaverkefni um hvernig við ynnum saman og það má með sanni segja að útkoma tilraunarinnar hafi verið vonum framar!“ segir Elísabet
Elísabet er listakona og myndskreytir  með BA-gráðu frá University College for the Creative Arts í Bretlandi og hefur tekið þátt í sýningum í Bretlandi og Belgíu en hélt sína fyrstu einkasýningu síðastliðið vor í Galleríi Sævars Karls. Anna er með BA-gráðu í bókmenntum og ritlist frá Vermont College í Bandaríkjunum og jógakennararéttindi frá Kripalu Center í Bandaríkjunum. Anna gaf nýverið út sína fyrstu bók; barnasöguna Mjallhvítur.

Þema keppninnar var „Ísland í jákvæðu ljósi“ – og var þar skírskotað til þess jákvæða krafts sem býr í menningunni, náttúrunni og fólkinu. Sérstök aukaverðlaun að verðmæti kr. 50.000 verða svo veitt fyrir „Jákvæðustu tillöguna“. Þau  verða kynnt við útgáfu á Símaskránni í vor. Ekki verður gefið upp nú hver tillagnanna þriggja hreppti efsta sætið – hulunni verður svipt af forsíðunni á útgáfudeginum í vor. Hins vegar má sjá verðlaunatillögurnar þrjár á slóðinni http://ja.is/um/simaskra-2010/