Aðalfundur FÍT verður haldinn í dag, fimmtudaginn 6. maí. Fundarstaður er húsnæði Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Vonarstræti 4b, klukkan 17.30.
Á dagskrá eru, auk hefðbundinna fundarstarfa, kjör í stjórn FÍT, niðurstöður verðkönnunar FÍT, kynning á Hönnunarmiðstöð og fleira.
Boðið verður upp á léttar veigar á meðan fundi stendur og á eftir.