Umræða: Atvinna

FRAFL leitar af vefhönnuði

Vitna í | Svara
Kæri viðtakandi
 
Við hjá Framkvæmdafélagi listamanna, FRAFL, erum að leita að efnilegum vefhönnuði sem hefur áhuga á að aðstoða frumkvöðlafyrirtæki sem hefur það markmið að opna fyrir nýjum leiðum á listmarkaðinum.
 
FRAFL er nýstofnað fyrirtæki með lágt fjárstreymi. Við höfum nýverið sótt um styrk til gerðar vefsíðu og væntum svars nú í apríl.
 
Vegna mikilla anna hjá FRAFL er þó mikilvægt að setja vefsíðu á fót sem fyrst sem inniheldur helstu uplýsingar um fyrirtækið; lýsing, verkefni, myndir, fréttaveitu o.s.frv.
 
Þess vegna leitum við eftir hönnuði sem er tilbúinn til að hanna “grunn” útlit vefsíðu (forsíðu og eina undirsíðu) í vefumsjónarforritinu google sites endurgjaldslaust. Allir textar, myndir ofl. er tilbúið til innsetningar. Ef og þegar styrkurinn dettur í hús þá viljum við að hinn sami hönnuður “klári” vefsíðuhönnnunina, jafnvel í öðru verumsjónarforriti, og fái fyrir það fulla greiðslu.
 
Ef þú hefur áhuga á ofangreindu eða ef einhverjar spurningar vakna, hafðu samband á frafl@frafl.is eða í síma 8223717 (Harpa).
 
Nánar um FRAFL:
 
FRAFL vinnur að því að finna  nýjar leiðir og skapa ný tækifæri fyrir myndlistarmenn  með metnaðafullum kynningum og sölu á verkum þeirra  þar sem réttinda þeirra er gætt í hvívetna.
 
Myndlistamenn geta leitað til FRAFL með ákveðin verkefni sem þeir vilja koma í framkvæmd og fyrirtækið leitar einnig til listamanna með verkefni sem að það á frumkvæði að.
 
FRAFL hvetur listamenn til þess að gæta réttar síns og býður einnig upp á ráðgjöf og lögfræðiaðstoð.
 
Kveðja,
Harpa Fönn

Framkvæmdafélag listamanna ehf.
www.frafl.is

Laugavegi 133 
105 Reykjavík
8223717
harpafonn@frafl.is
Formaður FÍT
www.larusson.com
Ragnar Freyr Pálsson - 4. mars 2010 kl. 16:41
Vitna í | Svara

Mig vantar málverk í stofuna. Vegna fjölda heimsókna og matarboða þyrfti ég fallegt málverk til að prýða aðalvegg heimilisins.

 

Ég er ekki fjársterkur og leita því að listmálara sem er til í að mála verk fyrir mig endurgjaldslaust. Hugmyndin mín af því er alveg tilbúin.

 

Ég keypti mér lottómiða í vikunni. Ef að vinningurinn dettur í hús þá vill ég að sami listmálari máli handa mér annað verk og fái fyrir það fulla greiðslu.

Ragnar Freyr
www.ragnarfreyr.com
www.createmake.com
Þórhildur Laufey Sigurðardóttir - 6. mars 2010 kl. 14:47
Vitna í | Svara
Kannski hægt að gera skiptivinnudíl - frí lögfræðiaðstoð gegn hugmyndavinnu fyrir heimasíðu :) - nei nei jók - ég skil alveg frústerasjónina Ragnar.

Bara í þessari viku hef ég verið beðin um þrennt: að "henda upp tímariti - 32 bls - helst fyrir mánudaginn næsta - myndir, texti eða konsept ekki alveg ljóst (!)", að útbúa "bara svona eitt lítið lógó fyrir sprotafyrirtæki" (tískuorðið í dag!! er ég kannski ekki líka sproti? - "að búa til heildarútlit fyrir vörulínu sem mögulega kannski örugglega mun fá styrk til að halda áfram"

Já og nefndi ég að þetta eru allt "pro-bono" verkefni.... jamm - það verða glæsilegir kvöldmatarnir sem ég bý krökkunum mínum uppá fyrir þessi laun...

eh og já - ég afþakkið pent þessi góðu gylliboð (því allt á þetta að gefa mikið í aðra höndina - vonandi seinna.. kannski... ) vonast til að flestir íhugi málið vel áður en svona boðum er tekið annars getum við farið að kalla okkur framvegis "föndurfélagið Hobbý og fjör"

góðar stundir
Þórhildur Laufey

p.s. ég kannast annars við þessar ágætu konur og er viss um að hugmyndin hafi ekki verið að móðga einn eða neinn - en ég efast um að smiðurinn sem innréttar húsnæðið þeirra - leigusalinn þeirra - búðin sem seldi þeim tölvur og tæki o.sv.fr. hafi ekki ákveðið að "lána" þeim og bíða þolinmóðir þangað til fyrirtækið er komið með styrkinn í höfn....
Hörður Lárusson - 8. mars 2010 kl. 15:36
Vitna í | Svara
Þetta er að sjálfsögðu ekki eins og maður vill hafa það, langt því frá. Og hugmyndin með að setja það hér ekki að hvetja fólk til að taka að sér svona, en eins og ástandið er og af því sem ég hef heyrt þá eru alveg einhverjir sem hafa lítið sem ekkert að gera og hefðu ekkert á móti því að fá smá verkefni, þó það borgi ekkert.

Eins og ég segi, ekki að hvetja fólk ... það er undir hverjum og einum að lesa og taka svo sína ákvörðun. 
Formaður FÍT
www.larusson.com
alli metall - 18. mars 2010 kl. 02:29
Vitna í | Svara
Ég var að lesa þetta núna og brást við á svipaðan hátt og Ragnar Freyr,... Hvernig væri að umorða beiðnina og bjóða eitthvað annað í staðinn?

Það eru jú margir hönnuðir í dag sem gætu leyst þetta verkefni, en þar sem þeir fá ekkert í staðinn að þá hafa þeir eflaust meiri áhuga á að leysa verkefni fyrir sjálfan sig, eða aðra sem bjóða eitthvað í staðinn.

Ég myndi aldrei skella upp auglýsingu hjá myndlistamönnum og biðja um listaverk "frítt", og bjóða þeim "hugsanlega" heim í kleinur eða pening ef vel gangi....

Þið vonandi afsakið hvernig ég bregst við, en þannig er það bara í þess tilviki.

Hvað fær viðkomandi hönnuður í staðinn? Viðkomandi hönnuður er eflaust frekar  til í að styrkja fátæk börn í afríku og vinna jafnvel einn eftirmiðdag hjá SÁÁ.

Ég hef nokkrum sinnum labbað framhjá Landsbankanum niðrí bæ og séð listaverk útí glugga, sem hefur örugglega verið borgað fullt af peningum fyrir, eða listasýningar sem hafa verið fjármagnaðar af fjársterkum aðilum... fengu freelance hönnuðir eitthvað af þessum peningum?, þótt þeir væru t.d. að vinna óeigingjarna vinnu fyrir tónlistarmenn eða aðra sem gátu lítið greitt fyrir ? og já, þá er ég að tala um árin fyrir hrun!

Mér er nokkuð sama hvort að rafvirkinn eða smiðurinn hafi gefið sína vinnu, það er einfaldlega þeirra mál... var svipuð auglýsing sett upp á þeirra fag vef ?

kveðja, Alli Metall



kveðja, alli metall

allimetall@gmail.com
www.metallstudio.com
alli metall - 18. mars 2010 kl. 02:33
Vitna í | Svara
Ég var að lesa þetta núna og brást við á svipaðan hátt og Ragnar Freyr,... Hvernig væri að umorða beiðnina og bjóða eitthvað annað í staðinn?

Það eru jú margir hönnuðir í dag sem gætu leyst þetta verkefni, en þar sem þeir fá ekkert í staðinn að þá hafa þeir eflaust meiri áhuga á að leysa verkefni fyrir sjálfan sig, eða aðra sem bjóða eitthvað í staðinn.

Ég myndi aldrei skella upp auglýsingu hjá myndlistamönnum og biðja um listaverk "frítt", og bjóða þeim "hugsanlega" heim í kleinur eða pening ef vel gangi....

Þið vonandi afsakið hvernig ég bregst við, en þannig er það bara í þess tilviki.

Hvað fær viðkomandi hönnuður í staðinn? Viðkomandi hönnuður er eflaust frekar  til í að styrkja fátæk börn í afríku og vinna jafnvel einn eftirmiðdag hjá SÁÁ.

Ég hef nokkrum sinnum labbað framhjá Landsbankanum niðrí bæ og séð listaverk útí glugga, sem hefur örugglega verið borgað fullt af peningum fyrir, eða listasýningar sem hafa verið fjármagnaðar af fjársterkum aðilum... fengu freelance hönnuðir eitthvað af þessum peningum?, þótt þeir væru t.d. að vinna óeigingjarna vinnu fyrir tónlistarmenn eða aðra sem gátu lítið greitt fyrir ? og já, þá er ég að tala um árin fyrir hrun!

Mér er nokkuð sama hvort að rafvirkinn eða smiðurinn hafi gefið sína vinnu, það er einfaldlega þeirra mál... var svipuð auglýsing sett upp á þeirra fag vef ?

kveðja, Alli Metall



kveðja, alli metall

allimetall@gmail.com
www.metallstudio.com
Hörður Lárusson - 22. mars 2010 kl. 17:15
Vitna í | Svara
Skilaboð frá FRAFL:
--
Vegna umræðna hérna á síðunni viljum við hjá FRAFL koma eftirfarandi á framfæri.

Framkvæmdafélag listamanna vinnur með og fyrir íslenska myndlistarmenn. Við sjáum um verkefnastjórn myndlistartengdra viðburða en erum ekki myndlistarmenn og getum því ekki svarað fyrir hönd þeirra. Við viljum því vinsamlega biðja lesendur og ummælendur hérna á FÍT að ráðast ekki persónulega á myndlistarmenn vegna tilkynningarinnar sem við birtum, enda slíkt algerlega úr samhengi við efni og innihald tilkynningarinnar og starfsemi FRAFL almennt.

Fyrirtækið var stofnað núna í nóvember og hafa starfsmenn þess hingað til unnið endurgjaldslaust. Skiljum við þó fullvel að þó svo að okkar viðskipti hafi gengið í þá áttina, gildir ekki hið sama um alla.

Viljum við undirstrika það að eftirfarandi tilkynning var birt á vef FÍT sem almenn tilkynning frá FRAFL þar sem óskað er eftir vefhönnuði. Að okkar mati er skilyrðum verkefnisins vel lýst í tilkynningunni og er það hönnuðum í sjálfvaldi sett hvort þeir vilji taka verkefnið af sér eða ekki. Við skiljum fullkomlega sjónarmið þeirra sem hafa ekki hug á að gera slíkt. Við höfðum ekki hug á að móðga neinn persónulega, enda tilkynningunni ekki beint persónulega að neinum heldur, eins og áður kemur fram, er hún almenn. 

Annars þökkum við öllum þeim hönnuðum sem hafa haft sambandið við okkur og sýnt verkefninu áhuga.

Kveðja,

FRAFL

Formaður FÍT
www.larusson.com
Ragnar Freyr Pálsson - 22. mars 2010 kl. 19:45
Vitna í | Svara
Ég hélt að þetta spjall væri lokað? *tounge-in-cheek*

;)
Ragnar Freyr
www.ragnarfreyr.com
www.createmake.com
Þín tilvitnun: sagði:


Hætta við tilvitnun
SvaraNýr þráður