--------------------------------------------------------------------------------
Til þess er málið varðar
Í tilefni af Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti stendur Mannréttindaskrifstofa Íslands að samkeppni um hönnun merkis/myndar fyrir vikuna sem útfærð verður á bol um fyrir þáttakendur (frá ca 8-18 ára), á titilsíðu bæklings, póstkort, veggpjald (sem einnig verður birt í götugluggum) og mögulega barmmerki .
Verðlaun fyrir bestu tillöguna eru €700 .
Okkur þætti vænt um ef þið gætuð dreift þessum pósti til félagsmanna og nemenda, sem og annarra sem þið teljið að myndu hafa áhuga. Auglýsingin um samkeppnina er í viðhengi og hér að neðan.
Endilega hikið ekki við að hafa samband ef ykkur fýsir að fá frekari upplýsingar.
Samkeppni um merki Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti er 13. til 21. mars nk. og þá munu Mannréttindaskrifstofa Íslands, ásamt Rauða krossinum, Þjóðkirkjunni, Soka Gakkai og Jafningjafræðslunni standa fyrir ýmsum viðburðum undir yfirskrift átaksins sem að þessu sinni er Njótum fjölbreytninnar!
Mannréttindaskrifstofa Íslands efnir nú til hönnunarsamkeppni um merki vikunnar með stuðningi frá Progress-áætlun Evrópusambandsins.
Við leitum að merki/mynd sem nota má veggspjöld, póstkort, bæklinga, boli, barmmerki og jafnvel fræðsluefni. Þema ársins í ár eru hlaupkallar og yfirskriftin, eins og áður segir: Njótum fjölbreytninnar! Hugmyndin er sú að allir hlaupkallar séu jafnir óháð kynþætti, kyni, fötlun, aldri eða trúarskoðunum.
Merkið/myndin verður því á einhvern hátt að nota hlaupkalla til að koma skilaboðum gegn mismunun á framfæri.
Til frekari glöggvunar bendum við slóð okkar á www.humanrights.is/servefir/evorpuvika-gegn-kynthattamisretti en þar má sjá boli og merki fyrri Evrópuvikuviðburða.
Verðlaun fyrir bestu hönnuna eru 700 Evrur.
Frestur er til 4. mars 2010.
Vinsamlegast sendið hugmyndir á Steinunni steinunn@mannrettindi.is , upplýsingar fást í síma 552-2720.
